Bessie Smith

Ég er búin að eyða páskafríinu í að hlusta á mikið af gamalli og góðri blús og djasstónlist. Mér finnst upphafið á þessu alveg frábært og rétt upp úr aldamótum 1900 fóru margir ágætir hlutir að gerast.

Þær konur sem ég hef verið að skoða eru til að mynda Bessie Smith en hún hafði ótrúlega kröftuga blúsrödd. Upptökurnar sem eru til með henni eru mjög gamlar og setur það svip sinn á lögin sem mér finnst reyndar bara bæta þau. Tilfinningin er að vera komin á einhvern bar eftir fyrri heimstyrjöld og hlusta á sorgarraunir þeldökkrar konu.

Bessie átti uppruna sinn í sýningum og kabarettum sem setur sinn stíl á sönginn. Blúsinn er reyndar oft fluttur í ákveðnum ,,kabarett" stíl á þessum tíma, klassískur blús hefur það verið kallað, sérstaklega hjá kvenlistamönnum á meðan karlmennirnir voru í hinum hefðbundnari delta stíl. Blúsinn skín þó afar skært í gegn hjá Bessie Smith og þrátt fyrir að hafa ekki mikið tónsvið þá meinar hún virkilega það sem hún syngur.

Mæli með því að sannir blúsáhugamenn reyni að ná sér í gamlar upptökur með Bessie og fá tímabilið beint í æð.  Eitt fallegasta lagið að mínu mati er Empty Bed blues en það var jafnframt eitt frægasta lag hennar fyrr og síðar.

Reyndar eru fleiri söngkonur á svipuðum tíma, Ida Cox, Ethel Water og Trixie Smith sem vert er að skoða í leiðinni. Bessie náði þó hvað lengst af þeim og hefur oft verið sögð fyrsta kvenblússöngkonan til þess að ná langt og öðlast ,,frægð" eða allavega mikla virðingu í tónlistarbransanum. 

In the beginning, Adam had the blues,
´cause he was lonesome.
So God helped him and created a woman.
Now everybody´s got the blues.

- Willie Dixon


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband